Gisting 707
Egilsstaðir er kjörinn dvalarstaður meðan á skoðun Austfirsku ferðamannaparadísarinnar stendur yfir.
 
Upplagt er að dvelja á Egilsstöðum og fara þaðan í dagsferðir, skoða Borgarfjörð eystri, skreppa upp í Hallormsstað, fara á hestbak í hestaleigunni þar og skoða trjásafnið. Fara Kárahnjúkahringinn og inn að Snæfelli sem er hæst fjalla á Íslandi utan jökla.
 
Til þess að ferðalagið verði sem ánægjulegast er nauðsynlegt að hafa rúmgóðan og notalegan gististað. Gisting 707 býður ykkur afnot af tveggja herbergja íbúðum í lengri eða skemmri tíma meðan á dvöl ykkar á Austurlandi stendur.
 
Einnig er boðið upp á ferðir til og frá flugvelli og umferðamiðstöð og stuttar skoðunarferðir með leiðsögn um nágrennið samkvæmt samkomulagi.
 



.

Gisting 707 - S:847-1733 - annfi@simnet.is